Heilsurækt fyrir alla

  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
About Fusion - Um Fusion Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

unnur

Unnur Pálmarsdóttir (íslenska) 

Unnur er eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Fusion sem stendur á bakvið heilsuhátíðina, Fusion Showcase, Fusion Fitness Festival, Fusion námskeið, Heilsuræktarstöðina Fusion Active  og Fusion Active Academy (Hóptímakennaranám).

Unnur Pálmarsdóttir er útskrifuð úr Mannauðsstjórnun við Háskóla Íslands  2008 og stúdent af íþrótta-og félagsfræðibraut frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla.

Hún er í Mastersnámi í MBA (Master of Buisness Administration) og útskrifast 2012 frá Háskóla Íslands.

Unnur hefur kennt þolfimi & dans í 18 ár og á að baki fjölda Íslandsmeistaratitla í þolfimi og dansi.

Árið 2010 hóf hún ráðgjafastörf hjá Latabæ og var framleiðandi sýningar Latabæjar í Kína, Shanghai á "World Expo 2011" ásamt Magnúsi Scheving og starfsfólki frá Latabæ. 

Er einkaþjálfari frá F.I.A og A.C.E.  og hefur þjálfað okkar bestu þolfimi- og fitnesskeppendur á liðnum árum bæði á Íslandi og á Spáni.

Hún hefur kennt á líkamsræktarráðstefnum í Bretlandi, Tyrklandi, Wales, Skotlandi, Írlandi, U.S.A., Mexíkó, Ísrael, Danmörku, Finnlandi, Færeyjum, Spáni, Ítalíu og Lanzarote á Kanaríeyjum.

Unnur hlaut þann heiður að vera valin kennari ársins af FitCamp 2003 (Presenter of Excellence) og kennari ársins á ráðstefnum (Presenter of the Convention 2004) í Bretlandi.

Unnur skipuleggur ráðstefnur og leggur metnað sinn í að þjálfa upp kennara á sviðum líkamsræktar- og heilsu og koma hæfileikaríkum kennurum á framfæri erlendis. 

Unnur hefur starfað sem deildarstjóri hóptíma í World Class og í Sporthúsinu ásamt að hafa tekið þátt í uppbyggingu á Sportstöðinni á Selfossi árið 2010. Sérhæfing er að innleiða stefnur og móta framtíðarsýn fyrirtækisins ásamt að ráða inn hæfustu kennara fyrir hverja hóptímastöð. 

Unnur er stofnandi og eigandi  Fusion Þolfimiakademíunnar sem hún stofnaði árið 2007. Fusion Þolfimiakademían leggur metnað sinn í að fræða og mennta framtíðar þolfimikennara á Íslandi.

Í ágúst 2011 opnar Fusion námskeið á Selfossi "Fusion Active". Með því móti er vörumerkið að stækka enn frekar. 

Unnur skipuleggur og þróar kennsluefni og heldur reglulega endurmenntunarnámskeið fyrir kennara og leiðbeinendur í heilsurækt.

Unnur hefur nýútgefið kennsluefni í Bretlandi á vegum Music Factory, Pure Energy. Kick Fusion og Dirty Dancing Aerobics er nýútkomnir DVD kennsluefni fyrir almenning í Bretlandi. Einnig er nýútkominn CD tónlist frá Unni Pálmars á vegum Pure Energy í Bretlandi "Aerobics 32". 

Á vegum Fusion hafa yfir 60 erlendir líkamsræktarfömuðir komið á Fusion Fitness Festival frá 2001.

Unnur er stofandi og frumkvöðull Fusion verðlaunanna sem veitir verðlaun fyrir framúrskarandi árangur á sviði heilsu- og líkamsræktar, einkaþjálfun og Fusion þolfimikennari ársins. Þessi verðlaun hafa verið veitt frá 2007 á Íslandi.

Fusion hefur safnað yfir 1 milljón króna og veitt til góðgerðarmála á Íslandi. Til KRAFTS, Blátt Áfram, Neistans og Barnaheill. Fusion heldur áfram að leggja sitt af mörkum til samfélagsins. 

Starfsemi Fusion er bæði á Selfossi og í Reykjavík.

Joomla Templates and Joomla Extensions by JoomlaVision.Com
 
 
Free Joomla Templates: by JoomlaShack