HIIT/Ketilbjöllur
Ný 6 vikna námskeið hefjast miðvikudaginn 30. maí. Skráning hafin!
Kennt: Mán/mið/föstudagar kl. 17:15

HIIT er æfingaraðferð sem byggir á hugmyndafræðinni um breytilegt álag. Ástæðan fyrir því að þessi aðferð er svona áhrifarík er að hún keyrir upp grunnbrennslu líkamans næstu 24 tímana og virðist minnka matarlyst meira heldur en stöðug þjálfun.
HIIT/ Ketilbjöllur:
*Eykur grunnbrennsluna eftir æfingu
*getur verið mjög stutt í framkvæmd(30-45 mínútur algengt)
*Eykur hámarkssúrefnisupptöku og góða kólesterólið.
*Lækkar blóðþrýsting
*Er skemmtilegt og mikil áskorun
Gerðar eru styrktar, kraft og þolæfingar í mislöngum lotum en í lotuþjálfun skiptast á lotur með hárri ákefð og lotur með lægri ákefð eða hvíld. HIIT training miðar að því að ná hámarksárangri í hverjum tíma, auka styrk og þol og bæta heilsuna. Til að auka ákefð og ganga skrefinu lengra er einnig hægt að notast við ketilbjöllur sem lóð.
HIIT training hentar öllum aldri, kyni og líkamsástandi og geta þátttakendur stillt álagið eftir eigin líkamsástandi.
Frábærir tímar, fjölbreyttar æfingar og engin hætta á stöðnun.
Mælingar í byrjun og lok námskeiðs.
Skráning á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Upplýsingar í síma: 8673534
Kennari eru Guðlaug Margrét Dagbjartsdóttir
Fusion Fitness Academy og Ketilbjöllu Hóptímakennari